VÖLVUSPÁ 2010 !!! FRAM AÐ VORI
Eins og ávalt þá á að hafa gaman að þessu,því ekki er allt sem við spákonur
fáum að vita,rett eins og annað fólk
ÞAÐ BYRJAR EKKI FALLEGA ÁRIÐ 2010
Ekki eigum við von á mjög góðum mánuðum þá einkum janúar og febrúar,það mun nánast
ekkert ganga upp hjá blessaðri ríkistjórninni að undanskyldum tveimur atriðum sem í raun skipir okkur mannfólkið ekki mikklu máli þannig seð,mikklar hártoganir. Einir þrír þingmenn hætta störfum og tveir nánast reknir.uppþot og mikil leiðindi og reiði í fólki almennt.
Stór aukning á tapi einstaklinga svo og fyrirtækja, nokkur svik koma upp hjá mönnum sem stjórna eða hafa stjórnað landinu og hjá einstaklingum, og mun þetta valda mikilli reiði meðal fólks hér á landi sem erlendis.
þetta snýr allt að viðskiptum.
Tveir nýir bankar verða opnaðir nú í byrjun árs eða nafnabreiting
Eg ætla ekki að fara nánar út í þessi mál,því nógu ljótt er það.
VEÐUR
Veðrið í byrjun árs verður eins og það hefur verið nú,þó örlítið meiri rigning en af snjó
janúar verður frekar kaldur í heildina og nokkuð meira af snjó hér sunnanlands, Vestfyrðir fara verst út úr þessu hvað veður varðar.annars mjög líkt á öllum stöðum, hlýjast sunnanlands og suðvestanlands.
En það mun vora snemma
SKEMMDARVERK
Það mun aukast þjófnaður , innbrot, eyðileggingar á eignum afbrot af ýmsum toga líkamsárásir og íkveikjur, það mun verða töluverð aukning á þessu í byrjun árs því miður, talsvert um stuld á bifreiðum svo og innbrot í húsnæði fólks og fyrirtæki. Einnig verður talsvert um íkveikjur. Ekki er þetta fallegt og mikið álag á lögreglu.
GJALDÞROT.
Geysileg aukning á gjaldþrotum einstaklinga og fyrirtækjum mun meira en á árinu 2009
það má segja að her ríkir algjört svartnætti þessa tvo mánuði ársins
FÓLKSFLÓTTI.
Enn munu fjölskyldur og einstaklingar flýja land í upphafi árs þá aðalega til Norðurlanda.
En með vorinu þá fer fólk að flytja heim því nú strax í marsmánuði mun verða nokkuð bjartara en fólk heldur,þó það gerist ekki á einni nóttu.
Fiskveiðar munu aukast til muna allt frá miðjum janúar, sem mun skapa atvinnu í landi sem er jákvætt og munu fiskveiðar í ár verða nokkuð góðar nánast út árið.
MARSMÁNUÐUR
Marsmánuður mikil uppstokkun á jákvæðan hátt,nokkur mál sem hafa verið í brennideppli ganga upp,svo frá þessum tíma er leiðin bara uppávið í atvinnumálum , húsnæðismálum og fl.Það verða tveir þingmenn sem standa uppúr hvað varðar ákverðanatökur sem ganga eftir.uppbygging hefst þá eða í marsmánuði. Það verða einungis 2. mánuðir þá september og október sem verða nokkuð þungir.
svo fólk getur lofað sér að verða örlítið bjartsýnnt.En það mun taka ein 3-4 ár að koma öllu í lag á nýjan leik, þetta er þó skref uppávið.
FÓLKSFJÖLGUN
Allnokkur fólksfjölgun verður á Akureyri og nágrenni ,Suðurlandi og á Reykjanesi með vorinu
vegna atvinnumála,aukning verður á þessum stöðum.sem er mjög svo jákvætt,sem sagt það mun verðajákvæð þróun á árinu og komandi árum.
nokkuð verður um erlenda fjárfesta,einning töluverð aukning á erlendum ferðamönnum,þó nokkuð meira en árið 2009.
HEILSUFAR
Í febrúarmánuði reyndar byrjar það aðeins í janúar allnokkuð skjæð flensa eða faraldur,og í sumum tilfellum verri en svínaflensan og ekkert verður til við þessari flensu,til að vinna á þessari er eins og með svínaflensuna hvíld og nægur vökvi,fólk mun leggjast allþungt í þessa flensu en sumir sleppa og aðrir fá einkenni,í einhvejum tilfellum þarf að leggja fólk inn vegna þessa því hun sest mikið í öndunarveginn ,lungun og mjög hár hiti fylgir henni það er allur aldur sem munu verða fyrir barðinu á þessari,en meira á þá sem eru viðkvæmari en aðrir.Bóluefnið sem nú er verið að gefa get ég ekki seð að virki gegn þessari flensu,eða svínaflensan að stökkbreitast og orðið ónæmt fyrir bóluefninu. En engin ástæða er til að hræðast.
Einnig mun hjataáföllum fjölga svo og aðrir sjúkdómar.sem má rekja nánast beint til álags og streitu..
Á heilbrigðissviðinu mun verða jákvæð uppbygging á árinu, sem var alls ekki fyrirseð að mundi gerast.
NÁTTÚRAN
Mikil aukning á jarðskjálftum víða um land.Reykjanesið, Suðurland, austurland og mývatnsveit. Upp kemur alveg nýtt sprungusvæði.Eldgos verður ekki þetta árið,það er eins og það sé alltaf að hefjast en ekkert verður úr fyrr en síðar,en ekki á árinu 2010
Nokkuð verður um aurskriður og valda þó nokkuð mikklum skemmdum víða um land,það munu opnast nýir hverir. Við vatnajökul og skaftafell mun myndast einskonar lón eins og hefur verið að gerast, en fólk sem hefur áhuga á útivist,fjallgöngu og fl ættu að forðast að fara ofan í vegna hættu sem geta stafað af svona hverum eða heitum lónum.
FRAMKVÆMDIR
Her á suðurnesjum eru þrír aðilar sem munu gera það gott á árinu hver á sýnu sviði með útfluttningi á vörum,einn af þeim mun hreynlega selja sýnar hugmyndir hljómar undarlega en þetta hjá þeim mun ganga mjög vel.
Svo árið 2010 svona eftir fyrstu tvo mánuðina er ástæða til að brosa þá allavega út í annað

ÍÞRÓTTIR
Körfuboltinn Njarðvík ,Keflavík og Snæfell berjast um toppinn sem að endar á að Njarðvík á eftir að hampa tittlinum í ár en það verður mjótt á munum hjá nágrönnunum,en Keflvíkingar eiga eftir að lifta tittli tvisvar á árinu eða nú fyrri partinn þá getur líka verið um yngri flokka að ræða.
Við eigum mikið af efnilegum Íþróttamönnum her á suðurnesjum einir þrír sundkappar gera það gott og safna að sér verðlaunum,einnig ung fimleikastúlka sem á eftir að gera það gott. Jói mun hampa þremur tittlum á árinu,hann slær ekki slöku við.
En það sem einkennir árið 2010 þrátt fyrir kreppu þá mun hugarfar hjá fólki breitast til hins betra með því að efla hugann, heilsurægt mikil aukning svo á íþróttum almennt sem er mjög jákvætt.
Svo í endan þá spái ég Chelsea taki titilinn í deildinni
Sumarið verður mjög gott jafnvel betra en í fyrra

Eg kem með aðra spá í vor ,þar sem spáð verður í Pepsideildina þar sem mikil breiting verður á
þar til næst
njótið